 |
 |
wGeologie |
 |
 |
 |
Menntavegur Jarðfræðingsins
|
 |
 |
 |
 |
 |
|
 |
 |
wFriday, October 18, 2002 |
 |
 |
 |

Já, var að fletta því upp hvað Mineralogie þýðir. Steinafræði er heitið.
posted by
Seldeg at 1:29 PM
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
wThursday, October 17, 2002 |
 |
 |
 |

Úff, ég fékk nú smá áfall við að fara í Mineralogie í dag. Ekkert nema stærðfræði. Hinsvegar leist mér vel á allt sem sagt var í Allgemeine Geologie (Almenn Jarðfræði). Það var ekkert verið að kenna en skipulags eðlis. Mér líst mjög vel á Dr. Rieder, mjög þægilegur náungi. Ég náði að mynda hóp um stærðfræðiheimadæmin með tveimur strákum, Thomas og Christian. Christian er nú reyndar sjálfsagt hátt í fertugt, en það skiptir ekki máli. Ég pikkaði SEND+MORE=MONEY lausnina mína inn í LaTeX bara til að hafa yfirsýn yfir það. Já, ég náði að leysa þetta. Fann nú reyndar á internetinu lausnina en þurfti ekki að nota það, bara til að koma mér af stað. Þaðan í frá er þetta ekki svooo flókið. Ég hugsa að við komum til með að skila verkefnum á LaTeX formi, eða þ.e.a.s. útprentun af pdf skjali sem gert var í LaTeX, er virkilega snyrtilegt. Ég fæ þá reynslu í að vinna með LaTeX. Á morgun er ekki neitt svo ég hef langa helgi til að læra.
posted by
Seldeg at 9:34 AM
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
wWednesday, October 16, 2002 |
 |
 |
 |

Í stærðfræði í dag var bara verið að fjalla um ýmsa hluti skipulagslegs eðlis svo að ekki þurfti að skrifa mikið upp. Við fengum hinsvegar heimadæmi sem skila á á mánudaginn. Ég hef verið að pæla í fyrsta dæminu, en það er þetta: Finna á út summuna. Hver stafur stendur fyrir eina tölu frá 0-9 og núll er ekki í fyrsti stafur. SEND + MORE = MONEY . Ég þarf að pæla í þessu... Fór líka í efnafræði í dag, var alveg ágætt. Kennarinn gerði nokkrar tilraunir (meira sýningar) og smá uppskrif. Ætli það verði ekki meira í þessu öllu saman.
posted by
Seldeg at 11:21 AM
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
wTuesday, October 15, 2002 |
 |
 |
 |

Fór í fyrsta fyrirlesturinn í dag; Mineralogie 1. Þar er verið að fjalla um Mineralien (verð að fletta þessu upp), steina og kristalla og þ.h. Ég vona að þetta verði ekki of flókið. Á morgun klukkan átta verð ég að fara í stærðfræði. Ég kvíði fyrir því. Það á að taka fyrir vektora, integral (verð líka að fletta þessu upp) og fleira þ.h. Ooohh...
Jæja, nú ætla ég að klára verkefnið sem sett var fyrir. Er svosum ekkert merkilegt. Það átti bara að setja nokkra punkta inn í hnitakerfi og snúa þessum punktum ("sameindum") svo bara um ásana. Speglun, 180°, 120°, 90° og 60°. Ég er að spá í að pikka inn það sem ég hef skrifað upp í hverjum fyrirlestri inn í LaTeX. Það auðveldar mér yfirferð fyrir prófin og svo get ég líka sett það á heimasíðu annað hvort hjá sjálfum mér eða í Fachschaft fyrir Geologie í TUM fyrir komandi kynslóðir. Jæja, nóg blaðrað núna. Skrifa á morgun hvernig mér líst á helv. stærðfræðina...
posted by
Seldeg at 12:55 PM
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
wMonday, October 14, 2002 |
 |
 |
 |

Í dag var fyrsti dagurinn í jarðfræði. Ekki mikið um að vera, það var bara verið að tala um hvenær fyrirlestrarnir byrja og svoleiðis. Ég keypti mér eina efnafræðibók f. 54 Evrur. Ég held annars ekki að ég verði að kaupa mikið af bókum. Það er a.m.k. ekki eins dýrt og á Íslandi þar sem ein bók kostar sama og þrjár hér.
posted by
Seldeg at 9:17 AM
|
 |
 |
 |
 |
 |
|